Harmljóðin-logo

Harmljóðin

Biblían

Harmljóðin voru löngum eignuð Jeremía. Þau eru lesin í samkunduhúsum Gyðinga á árlegri sorgarhátíð þeirra til minningar um eyðingu Jerúsalem og musterisins 587 f.Kr. Ljóðin lýsa neyð og örvæntingu þeirra sem drógu fram lífið í rústum Jerúsalem eftir hervirki sigurvegaranna sem höfðu flutt flesta íbúana í útlegð til Babýlonar. Harmljóðin eru að því leyti einstök heimild um sögu Ísraelsþjóðarinnar að þau ein greina frá hlutskipti þeirra sem eftir urðu í Júda við fall Jerúsalem. Í hebreska textanum er versunum raðað í stafrófsröð, að frátöldu fimmta ljóðinu. Ekki er ólíklegt að þetta form, bragarháttur ljóðanna, eigi að tákna að mælir harmanna sé fullur. Í hebreska stafrófinu eru tuttugu og tveir stafir og því er hver kafli tuttugu og tvö vers. Í 3. kafla eru þrjú vers um hvern staf svo að hann er sextíu og sex vers. Í ýmsum kirkjudeildum skipa Harmljóðin veglegan sess í helgihaldinu, t.d. á lönguföstu. Píslarsaga guðspjallanna vitnar beint í Harmljóðin og önnur rit Nýja testamentisins bergmála ljóðin óbeint í tilvitnunum. Skipting ritsins 1 Harmar Jerúsalem 2 Drottinn hegnir Jerúsalem 3 Hegning, iðrun, von 4 Jerúsalem eftir fall borgarinnar 5 Bæn um miskunn Duration - 21m. Author - Biblían. Narrator - Þóra Karítas Árnadóttir. Published Date - Wednesday, 17 January 2024.

Location:

United States

Description:

Language:

Icelandic

Premium Episodes
Premium

Duration:00:22:00

Duration:05:35:45

Duration:05:55:53

Duration:05:47:36

Duration:03:56:21

Duration:02:20:58

Duration:00:22:37